Mynd: Nick Williams
Mynd: Nick Williams
Námskeið í endurheimt votlendis
18.08.2026

Landbúnaðarháskólinn mun standa fyrir tveggja daga námskeiði 23.-24. september næstkomandi þar sem fjallað verður um endurheimt votlendis, mikilvægi votlendisvistkerfa og faglegar aðferðir við skipulagningu, framkvæmd, eftirfylgni og árangursmat endurheimtarverkefna.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Land og skóg og Mýralíf og byggir á faglegri þekkingu og reynslu af endurheimt votlendis hér á landi.

Í náminu fá þátttakendur yfirsýn yfir hlutverk mýra í íslenskri náttúru, meðal annars út frá líffræðilegri fjölbreytni, vatnsbúskap, loftslagsmálum og vistkerfaþjónustu. Farið er yfir einkenni mismunandi votlendisvistgerða, greiningu vatnasviða og vatnsflæðis, mat á ástandi votlendissvæða og áhrif endurheimtar á nærliggjandi svæði.

Sérstök áhersla er lögð á allt ferli endurheimtar votlendis, frá forvinnu og forskoðun svæða til grunnúttektar og árangursmats. Þátttakendur kynnast jafnframt SER-stöðlum og vottunarferli sem tengist endurheimt votlendis.

Námskeiðið sameinar fyrirlestra, umræður, verkefnavinnu og vettvangsvinnu þar sem þátttakendur vinna með greiningu og mat á votlendissvæðum, skipulagningu endurheimtaraðgerða og mat á árangri þeirra.

Námskeiðið hentar öllum sem koma að skipulagningu, ráðgjöf, framkvæmd, mati eða eftirfylgni verkefna á sviði endurheimtar votlendis.

Fyrirkomulag, námsmat og verð

Um er að ræða tveggja daga staðnám með blöndu af fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og vettvangsvinnu. Hluti námsins fer fram í nærumhverfi skólans þar sem þátttakendur fá hagnýta þjálfun í greiningu, kortlagningu og mati á votlendissvæðum.

Námið er metið til 1 ECTS einingar á háskólastigi og verður haldið í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri í Borgarfirði, Ársal 3. hæð, og í nærliggjandi umhverfi.

Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 23. september og fimmtudaginn 24. september klukkan 9-17 báða daga. Það kostar 50.000 kr. – innifalið í verði er sérfræðikennsla, hádegisverður og kaffiveitingar fyrir og eftir hádegi báða kennsludaga.

Umsóknarfrestur er til og með 18. september.

Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti. Athygli er vakin á því að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið.

Hægt er að skrá sig á vefsíðu LBHÍ og finna frekari upplýsingar um námið.

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið