
Fyrsta farandsýning Mýralífs var haldin á Menningarnótt, 22. ágúst, í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Ýmislegt var á boðstólum fyrir sýningargesti og var mæting verulega góð. Tilgangurinn með sýningunni er að fræða fólk um lífið í mýri, endurheimt votlendis og áhrif hennar.
Starfsfólk Mýralífs frá Fuglavernd, Landbúnaðarháskólanum og Landi og skógi var á staðnum frá klukkan 13:00 til 18:30 og létu gestir ekki rigningu og slagviðri á sig fá. Fólk á öllum aldri kíkti við til að forvitnast um sýninguna og skoða ýmislegt áhugavert sem tengist mýri.

Hornsílin vöktu lukku
Hægt var að fræðast um ýmsa anga endurheimtar votlendis, til að mynda áhrif á fugla, fiska og loftslag – líffræðilega fjölbreytni og menningarlegt gildi votlendis.
Til sýnis var meðal annars þurrkaður mór sem nýttur var sem eldiviður hér áður fyrr og votlendisplöntur ýmiss konar. Hægt var að púsla og fá tattú, skoða ýmis tæki sem Land og skógur notar til mælinga í votlendi, pota í barnamosa og fletta í möppu með þurrkuðum plöntum úr mýri.

Óhætt er að segja að hornsílin (Gasterosteus aculeatus) hafi verið vinsælust á sýningunni. Starfsmenn Lands og skógar notuðu svokallaðar sílagildrur sem stóðu yfir nóttina í Vatnsmýrinni til að veiða hornsílin. Þau nutu athyglinnar yfir daginn en að sýningu lokinni voru þau flutt aftur til sinna heimkynna, sæl og sátt.

Hljóðheimur íslensks sumars
Fugla- og náttúruhljóðið sem ómaði í gróðurhúsinu var tekið upp af Magnúsi Bergssyni þann 26. júní 2012 í Friðlandi í Flóa.
„Klukkan er um tvö eftir miðnætti og fuglalífið á fullu á þessari björtu sumarnótt. Þeir fuglar sem heyrist mest í eru lómur og tveir ungar hans, óðinshanar, stelkur og spói. Ýmsar aðrar tegundir eru svo í bakgrunni. Í bakgrunni má heyra í briminu meðfram suðurströndinni, einhverri umferð, hestum og kindum,“ segir í lýsingunni á vefsíðu Magnúsar, Hljóðmynd – Soundimage, en þar er hægt að hlusta á margar áhugaverðar upptökur, meðal annars náttúru- og umhverfishljóð ýmiss konar.
Við mælum eindregið með því að kíkja á www.fieldrecording.net

Takk, Reykjavíkurborg
Menningarnótt er einn stærsti viðburður ársins í Reykjavík þar sem tugir þúsunda leggja leið sína í miðbæinn til að sækja hina ýmsu viðburði, sýningar og tónleika. Við þökkum Reykjavíkurborg kærlega fyrir að leyfa okkur að hýsa farandsýninguna í gróðurhúsinu.
