
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, og Bára Huld Beck, kynningarstjóri Mýralífs, kynntu verkefnið á ársfundi LIFE 2026 fimmtudaginn 28. maí síðastliðinn í Norræna húsinu.
Fram kom á fundinum að íslenskir aðilar hefðu fengið úthlutað 5,5 milljörðum króna úr umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins, LIFE, frá árinu 2021. Á ársfundinum kynntu fulltrúar fjögurra verkefna starf sitt og reynslu af áætluninni, þar á meðal Mýralíf en alls hafa 10 verkefni fengið styrk frá árinu 2021.
Ragnheiður fjallaði í framsögu sinni um umsóknarferlið í grófum dráttum, markmið Mýralífs og hvað framundan er. Bára Huld fór yfir kynningarmál verkefnisins og þá spennandi viðburði sem Mýralíf mun taka þátt í og framkvæma á árinu. Þar má telja Hvanneyrarhátíð sem fer fram 8. ágúst næstkomandi og farandsýningu sem verkefnið mun standa fyrir á Menningarnótt seinna í ágúst.

Hér er hægt að horfa á upptöku af fundinum.
Myndir: Rannís