Mynd sem tengist textanum
Milljarður frá ESB í endurheimt votlendis á Íslandi
26.09.2025

Sjö samstarfsaðilar hafa hlotið styrk frá LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Peatland LIFEline.is er metnaðarfullt verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Samstarfsaðilar eru: Landbúnaðarháskóli Íslands, Land og skógur, Fuglavernd, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknastofnun, Náttúruverndarstofnun og bresku fuglaverndarsamtökin Royal Society for the Protection of Birds (RSPB). Verkefnið er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands.

Áhersla lögð á þrjár fuglategundir

Verkefnið hófst formlega þann 1. september síðastliðinn og mun standa yfir í 66 mánuði, eða til loka febrúar 2031. Heildarkostnaður nemur rúmlega 8 milljónum evra, þar af leggur LIFE-sjóðurinn til 75% fjárhæðarinnar, eða um 6 milljónir evra (sem samsvarar um einum milljarði íslenskra króna).

Markmið verkefnisins Peatland LIFEline.is er að auka þekkingu og skilning á votlendi á láglendi á Íslandi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og búskap gróðurhúsalofttegunda. Áhersla verður lögð á vistgerðina starungsmýravist sem hefur mjög hátt verndargildi og á þrjár fuglategundir sem eru tákn um heilbrigt votlendi en það eru tegundirnar jaðrakan, stelkur og lóuþræll – sem og á evrópska álinn sem er í útrýmingarhættu. Auk þessa verður mikil áhersla lögð á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.

Sendiherra ESB mætti á Hvanneyri

Fyrsti fundur verkefnisins var haldinn dagana 22.–24. september 2025 á Hvanneyri í Borgarfirði og mættu um 50 þátttakendur. Megintilgangur hans var að ræða skipulag og framtíðarplön og leggja línurnar fyrir þau verkefni sem framundan eru.

Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, tók þátt í setningardegi fundarins ásamt sendinefnd sinni: Samúel Ulfgard, aðstoðarforstöðumanni sendinefndarinnar, og starfsnemunum Þórhildi Kristínardóttur og Þórhildi Søbech Davíðsdóttur. Sendiherrann flutti ávarp þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi Peatland LIFEline.is sem hluta af LIFE-áætlun Evrópusambandsins á sviði náttúru- og loftslagsmála.

Mynd: James Einar Becker

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið